Leigumiðlunin


Starfsmenn stofunnar hafa áratuga reynslu við skoðun og mat fasteigna.

Við skoðum eignina þína, skráum hana og tökum myndir. Við leggjum til okkar mat á leigufjárhæð að loknum matsfundi, og annað er þarf til að þú getir tekið upplýsta ákvörðun um að leigja frá þér eign þína.

Við auglýsum eignina í samráði við þig og sjáum um allan frágang og það sem þarf til á ábyrgan hátt og í samræmi við gildandi löggjöf. Við vitum hvað felst í þjónustu okkar. Við svörum fyrirspurnum viðskiptavina okkar góðfúslega, og ráðleggjum um hvað felist í gerð tímabundinna og ótímabundinna leigusamninga og hvað þeir þýða fyrir þig, útskýrum tryggingar, verðtryggingarákvæði, ákvæði um skaðabætur, reglur um úttektir og önnur atriði er varðað geta húsaleigusamning. Við útskýrum þetta allt fyrir þér.

Þá fara allar fyrirspurnir um eignina gegn um skrifstofu okkar, sem lýkur með að samið er við þann leigutaka er leigusali samþykkir og endar með að gerður er leigusamningur.

Þjónusta/gjaldskrá

Leigutakar þurfa almennt ekki að greiða fyrir okkar þjónustu!

Hér eru þær þjónustuleiðir sem í boði eru fyrir leigusala íbúðarhúsnæðis - Við mælum með Leið 2. Leið 2 er sú leið er við getum með stolti sagt að sé sú allra ódýrasta á landinu!

Ef þú vilt þægindi og góða en um leið ódýra þjónustu hafðu þá samband í síma 445-3500 eða sendu póst á leigumidlun@leigumidlun.com.

Öll verð eru með VSK.  Gjaldskrá uppfærð í feb. 2011.

------------------------------------------------------------------------------------

Leið 1 - Full þjónusta - Öll vinna í öruggum höndum Leigumiðlunar

Löggildur leigumiðlari frá fyrirtæki okkar kemur og skoðar og metur eignina, tekur ljósmyndir og ákveður í samráði við eiganda sýningu eignarinnar.

Öllum fyrirpurnum vegna eignarinnar er svarað af sérfræðingum Leigumiðlunnar og þarf leigusali ekkert að gera nema hann kjósi svo. Við svörum, sýnum, ráðleggjum, gerum tilboð og allt sem þarf til við leigu á viðkomandi eign. Þannig að leigusalinn er laus við allt ónæði og þarf ekkert að gera nema hafna eða samþykkja leigutilboð.

Við könnum hagi væntanlegs leigutaka og leggjum okkur fram við að upplýsa leigusala sem best um væntanlegan leigutaka. Ef leigusali er sáttur við leigutakann veitum við milligöngu vegna alls þess er þarf til að unnt sé að ljúka samningum með löggildum leigusamningi. Við útbúum eftir atvikum önnur skjöl ef þarf, t.d umboð, yfirlýsingar ofl.

Þessi þjónusta kostar andvirði eins mánaðar leigu viðkomandi eignar.

Ef fasteign er leigð í skamman tíma er þóknun miðlunarinnar skv. samkomulagi.

---------------------------------------------------------------------------------------

Leið 2 - Hagkvæmni og öryggi í fyrirrúmi!

Í leið 2 tekur leigusalinn sjálfur á móti öllum fyrirspurnum, tekur myndir, sýnir eignina og velur leigjanda.

Við birtum auglýsingu á eigninni með myndum leigusala og lýsingu eignar. Lýsingu eignarinnar getum við aðstoðað leigusala með ef þarf.

Miðlun okkar gerir löggildan leigusamning og veitir leigusala alla nauðsynlega ráðgjöf, m.a. ráðgjöf varðandi tryggingar.

Þessi þjónusta er á föstu lágu verði á aðeins kr. 18.825 með virðisaukaskatti,-. Listaverð er kr. 49.900,- m/vsk.  

Athygli er vakin á að öll aðferðafræði og vinna við skjalagerð er með sama vandaða hættinum hvað leið sem valin er. Á stofunni okkar er ávallt vandað til skjalagerðar, alveg óháð þeirri leið er viðskiptavinur okkar kýs.

Fyllsta öryggis er gætt við gerð samnings og fylgiskjala.

----------------------------------------------------------------------------------------

Leið 3 - Blönduð leið – þú velur það er hentar þér best!

Ef þú vilt getur þú valið blandaða leið. Þú velur það sem þér hentar af Leið 1 og Leið 2.

Þú ákveður hvað þú vilt að við gerum fyrir þig og berð það undir okkur, og við gerum þér hagstætt tilboð.

Þú ræður ferðinni!

---------------------------------------------------------------------------------

Sendu okkur tölvupóst á leigumidlun@leigumidlun.com með öllum upplýsingum er við þurfum, t.d. götu og húsnúmeri eignar, ásamt nafni og símanúmeri eiganda eða þess er umboð hefur til útleigu eignarinnar.

 Önnur þjónusta er miðlunin veitir

Við erum lögfræðistofa og leigumiðlun og veitum því víðtæka ráðgjöf!

  • Ráðgjöf til aðila leigusamninga, varðandi túlkun leigusamninga ef ágreiningur kemur upp milli aðila.  Ráðgjöf þessi varðar einungis þau álitaefni er viðkoma leigu fasteignar.  Grunngjald er kr. 5.400,-.
  • Við bjóðum leigutökum uppá þjónustu er felur í sér að miðlunin hlutast til um milligöngu við öflun trygginga, þinglýsingu skjala (felur ekki í sér stimpil eða þinglýsingagjöld). Er það grunngjald að fjárhæð kr. 7.400.
  • Leigumiðlun áskilur sér rétt til greiðslu forfallagjalds. Væntanlegur skoðandi getur verið krafinn um forfallagjald, ef hann hefur staðfest komu sína en mætir ekki án tilkynningar. Tilkynning þarf að berast a.m.k tveimur klukkustundum fyrir sýningu. Forfallagjald er kr. 2.490,-.
  • Ef leigusali hefur valið að skrá eign skv. einhverri þjónustuleið okkar, og hefur sannanlega nýtt sér þjónustu miðlunarinnar, en gengur frá samningi án milligöngu stofunnar áskilur miðlunin sér rétt til að innheimta af viðkomandi gjald er getur verið allt að fjárhæð kr. 15.000.- að viðlögðum virðisaukaskatti. Alls kr. 18.825.-
  • Almenn þjónusta löggilts leigumiðlara vegna ráðgjafar er varðar leigu fasteigna og málefna tengdum þeim er kr. 9.400 kr. pr. klukkustund.  

þjónustu og gjaldskrá leigumiðlunar.com

Leigumiðlun.com er í samstarfi við:
 

JJ Lawyers

www.logfraedistofan.is



www.Leigumidlun.com / www.husaleiga.net  

Leigumiðlun.com / Húsaleiga.net | Skeifan 11 | 108 Reykjavík | Sími 445 3500 | Tölvupóstur: leigumidlun@leigumidlun.com